Reykhólahreppur fellir niður gjöld í leikskóla og tónlistarskóla

Frá Reykhólum.

Í nýrri fjárhagsáætlun Reykhólahrepps er gert ráð fyrir að leikskólagjöld verði felld niður að fullu. Með því er tekið einstakt skref í átt að fjölskylduvænna samfélagi sem hlýtur að vera markmið allra sveitarfélaga. Með niðurfellingu leikskólagjalda er Reykhólahreppur að viðurkenna leikskólann sem fyrsta skref skólagöngu barna og hampa því faglega starfi sem þar fer fram.

Gjöld í tónlistarnám verða einnig felld niður og er það viðleitni sveitarfélagsins til að efla menningarstarfsemi í héraðinu.

Gert er ráð fyrir akstri fyrir börn í sumarstarfsemi á vegum sveitarfélagsins.

Í áætluninni er gert ráð fyrir því að Reykhólahreppur styðji atvinnuþróun á svæðinu, þar sem sveitarfélagið mun taka þátt í verkefnum með fyrirtækjum við undirbúning  grænna iðngarða.

Staða sveitarsjóðs Reykhólahrepps er góð, áætlaður er tæplega 30 milljón króna afgangur af sveitarsjóði á næsta ári.

DEILA