Ísafjarðarbær: Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna

Ísafjarðarbær ákvað árið 2019 að veita akstursstyrki vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna.

Styrkirnir eru til handa foreldrum barna og unglinga á grunnskólaaldri sem eiga lögheimili í Dýrafirði, Súgandafirði og Önundarfirði og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Ísafjarðarbæ.

Aðeins er veittur einn styrkur á hvert heimili á ári, óháð fjölda barna. Ekki er greiddur út styrkur til barna og unglinga sem eiga lögheimili í Skutulsfirði þar sem frístundarúta milli Skutulsfjarðar og Bolungarvíkur þjónar þeim.

Upphæð styrks fyrir heimili er 30.000 kr. á ári. Styrkir eru greiddir út einu sinni á ári, í desember, að undangenginni auglýsingu frá Ísafjarðarbæ og tilkynningu HSV til aðildarfélaga.

Til að eiga rétt á styrk þarf að framvísa tveimur eða fleiri af neðangreindum gögnum á skrifstofu Ísafjarðarbæjar eða í gegnum tölvupóstfangið postur@isafjordur.is:

  • Staðfesting frá íþróttafélagi og/eða deild um að viðkomandi hafi stundað a.m.k. 12 æfingar yfir árið.
  • Staðfesting frá tónlistarkennara barns um ástundun.
  • Staðfesting starfsmanns félagsmiðstöðva á að barn/unglingur hafi sótt miðstöðina a.m.k. 12 sinnum yfir árið.
  • Staðfesting umsjónarmanns björgunarsveitarstarfs að barn/unglingur hafi stundað skipulagt starf með unglingastarfi björgunarsveitar a.m.k. 12 skipti yfir árið.
  • Kvittun fyrir æfingargjöldum tónlistarskóla.
  • Kvittun fyrir æfingargjöldum íþróttafélags.

Einnig þarf kennitala og bankaupplýsingar foreldris sem tekur við greiðslu að fylgja umsókninni.

Síðasti dagur til að skila umsókn um styrk fyrir árið 2021 er 30. nóvember. Styrkir verða greiddir út 7. desember.

DEILA