Innflytjendur 15,5% íbúa landsins

Hinn 1. janúar 2021 voru 57.126 innflytjendur á Íslandi eða 15,5% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 15,2% landsmanna (55.354). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 15,5%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, voru 5.684 í fyrra en eru nú 6.117. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 17,1% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega á milli ára og eru nú 7,1% mannfjöldans.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.


Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 20.520 innflytjendur frá Póllandi eða 35,9% allra innflytjenda. Þar á eftir koma einstaklingar frá Litháen (5,7%) og Filippseyjum (3,7%). Pólskir karlar eru 37,9% allra karlkyns innflytjenda eða 11.871 af 31.339. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (6,4%) og síðan koma karlar með uppruna frá Rúmeníu (4,6%). Pólskar konur eru 33,5% kvenkyns innflytjenda, næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,6%) og þá konur frá Litháen (4,9%).

27,7% íbúa á Suðurnesjum innflytjendur – 20,5% á Vestfjörðum

Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 27,7% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 20,5% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 9,5% mannfjöldans innflytjendur og börn þeirra.


DEILA