Á vegum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur verið gefinn út á bæklingur sem hefur það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.
Bæklingurinn kom fyrst út á sex tungumálum, fyrr á árinu bættust arabíska og víetnamska við og nú síðast spænska. Önnur tungumál eru íslenska, enska, pólska, tælenska, litháíska og filippseyska.
Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna.
Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem dæmi má nefna; upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga, frístundastyrki, mikilvægi þátttöku foreldra og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi.
Hér er hægt að nálgast bæklinginn.