Nýr lögreglubíll á Ísafirði

Mynd: Ingvar Jakobsson

Lögreglan á Vestfjörðum hefur nú tekið í notkun nýja pallbifreið af gerðinni Ford Ranger Raptor.

Líklega er hér um að ræða fyrstu pallbifreiðina sem notuð er til eftirlits og útkalla af hálfu lögreglunnar á Íslandi.

Eins og alþjóð veit hafa margar útgáfur bifreiða verið í þjónustu lögreglunnar í gegnum tíðina, en margar þeirra ekki hentað aðstæðum eða lögreglumönnum vel.

Nú er ætlunin að reyna þessa gerð og verður spennandi að sjá hvernig bifreiðin reynist. Hún verður með uppkallsnúmerið 107 og gerð út frá Ísafirði.

Bifreiðin kemur frá Brimborg og var standsett af Rafsölum á Siglufirði og merkt af Skiltagerð Norðurlands á Ólafsfirði.

DEILA