Endurnýting iðnaðarhúsnæðis

David A. Kampfner

Á vefsíðu Byggðastofnun er sagt frá styrk til meistaranemans David A. Kampfner til að skoða hvernig byggingar þar sem áður var atvinnustarfsemi (iðnaðarminjar) eru endurnýttar í dag í þágu annarrar starfsemi.

Dæmi um slíkar byggingar og breytta starfsemi í þeim eru síldarverksmiðjan á Djúpuvík á Ströndum, Nes-listamiðstöð á Skagaströnd og Síldarminjasafnið á Siglufirði.

Íslenskar sjávarbyggðir hafa átt undir högg að sækja vegna stöðugs samdráttar í hefðbundnum atvinnugreinum á borð við fiskveiðar og landbúnað. Um alla Evrópu hafa iðnminjar orðið mikilvægur þáttur í byggðaþróun og endurnýjun atvinnulífs.

Í þessari rannsókn eru endurnýttar iðnminjar á Íslandi skoðaðar og sérstök áhersla lögð á að kanna áhrif þeirra á efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar breytingar. Sextán minjastaðir á Íslandi eru skoðaðir, sem allir eru á ólíku stigi aðlagaðrar endurnotkunar, meðal annars með tilliti varðveislu og túlkunar. Viðtöl voru tekin við 50 aðila í tveimur lotum frá september 2019 til janúar 2021.

Í rannsókninni eru greind lykilatriði sem stuðla að árangursríkri aðlögun minjastaða, tengsl og sameiginlega eiginleika þeirra til að skilja betur hvernig megi aðlaga og forgangsraða þessari minjavernd þegar kemur að byggþróun, framþróun ferðamennsku og skipulagsmálum.

Einnig er lögð fram tillaga að stefnumótunum sem inniheldur aðgerðir til að styðja við varðveislu tuttugustu aldar minja, einkum bygginga.

Rannsóknarskýrsluna má nálgast hér.

DEILA