Hamri og Vestra dæmdur sigur gegn Hrunamönnum

Vegna Covid-19 smita var leikjum Hrunamanna gegn Hamri og Vestra upphaflega frestað, en hægt hefur verið á öllu á Flúðum meðan þetta gengur yfir, það með talið íþróttum. Samkvæmt fréttatilkynningu KKÍ í gær mun þessum leikjum nú hafa verið aflýst, þar sem að Hamri og Vestra verður dæmdur sigur. Ástæðurnar þær að þegar svo stutt sé í úrslitakeppni, gangi hreinlega ekki að finna nýja dagsetningu fyrir þá.

Tilkynning KKÍ

Eins og fram hefur komið í fréttum, þá hefur verið hægt á öllu lífi á Flúðum eftir að upp kom smit í grunnskólanum. Sveitarstjórn Hrunamannahrepps ákvað meðal annars að loka íþróttahúsi sveitarfélagsins, auk þess sem bæði leikmenn og aðrir tengdir félaginu eru í sóttkví. Hrunamenn sjá sér því ekki fært að leika þá tvo leiki sem eftir eru hjá þeim í 1. deild karla á næstu dögum, eða innan þess ramma sem deildarkeppnin býður.

Þar sem dregur að lokum deildarkeppni 1. deildar karla, en lokaumferð deildarinnar fer fram mánudaginn 3. maí, þá sér mótanefnd KKÍ sér ekki fært að setja leiki Hrunamanna aftur fyrir lokaumferð deildarkeppni 1. deildar, þar sem stutt er í úrslitakeppni deildarinnar. Mótanefnd hefur tekið þá erfiðu ákvörðun, eftir samtal við Hrunamenn og að vel ígrunduðu máli, að þessir leikir Hrunamanna munu ekki fara fram. Hamar og Vestri hljóta því sigur í þessum lokaleikjum.

DEILA