Hvítanes

Hvítanes er staðsett á nesinu milli Hestfjarðar og Skötufjarðar.

Frá Hvítanesi er gott útsýni yfir Ísafjarðardjúpið og Vigur. Það sem leynist í fjörunni við bæinn er það sem fær flesta til þess að nema staðar.

Á klöppunum og skerjunum rétt fyrir utan liggja yfirleitt nokkrir selir og stundum nokkrir tugir þeirra. Það eru fáir staðir á Íslandi sem bjóða upp á jafn mikla nálægð við þessi dýr líkt og Hvítanes.

Bændurnir í Hvítanesi hafa einnig gert svæðið skemmtilegra með því að setja upp borð og bekki og bjóða gestum einnig að fá lánaða sjónauka til þess að geta komist í meira návígi við selina.

Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands

DEILA