Hundrað milljónir í Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, undirritar úthlutunarreglur Lóu

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.  

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:  

„Lóa mun styðja við og auka slagkraft nýsköpunarverkefna og samstarf aðila um land allt, á forsendum svæðanna sjálfra. Hún helst í hendur við annan mikilvægan stuðning á vettvangi nýsköpunar á landsbyggðinni og í atvinnulífinu, svo sem sóknaráætlun landshlutanna, byggðaáætlun og aðrar svæðisbundnar áherslur. Í þessu aukna samstarfi sem við erum að sjá víða um land felast mikil tækifæri. Við erum að styðja við það.“

Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.  


Umsóknarfrestur er til 09. mars 2021.
Umsóknum er skilað rafrænt. Opnað verður fyrir umsóknir þann 11. febrúar á eyðublaðavef stjórnarráðsins

DEILA