„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O. Flokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum,“ segir í tilkynningu frá Guðmundi Franklín Jónssyni viðskiptafræðingi og fyrrum forsetaframbjóðanda.
„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn berst fyrir fullveldi landsins, beinu lýðræði, auðlindum í eigu þjóðar og gegn spillingu.
Flokkurinn verður með opinn stofnfund sem verður auglýstur síðar. Áhugasamir geta fylgst með umræðunni og málefnastarfinu á facebook síðu flokksins „Betra Ísland – Beint lýðræði“ Áhugasamir geta einnig haft samband í gegnum netfangið: frjálslyndi@gmail.com.“
Guðmundur Franklín bauð sig fram í forsetakosningunum á síðasta ári og hlaut þá 7,6% atkvæða.