Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðvesturkjördæmi verður með forval til að ákveða framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar.
Flokkurinn á nú einn þingmann í kjördæminu; Lilju Rafney Magnúsdóttur á Suðureyri, en varaþingmaður er Bjarni Jónsson á Sauðárkróki.
Talið er að þau muni bæði gefa kost á sér áfram.
Kjörstjórn hefur nú auglýst eftir frambjóðendum. Forvalið fer fram með rafrænum hætti dagana 23., 24. og 25. apríl, en kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til kl. 17.00 25. apríl.
Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG.
Framboðsfrestur rennur út á miðnætti 2. apríl. Þá mun kjörstjórn taka við tilnefningum almennra félaga um frambjóðendur fram til 26. mars á netfangið nordvestur@vg.is
Atkvæðisbær í forvalinu eru allir sem skráðir eru í hreyfinguna í kjördæminu tíu dögum fyrir kjörfund, eða 13. apríl.