Tvö þóttust vera eftirlitsmenn Matvælastofnunar

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á atburði þar sem tveir einstaklingar heimsóttu hundagæslu undir því yfirskyni að vera starfsmenn stofnunarinnar.

Sett var út á starfsemina og hún stöðvuð.

Ekkert eftirlit fór fram þennan dag af hálfu Matvælastofnunar.

Í 116. gr. almennra hegningarlaga segir að hver sá sem tekur sér opinbert vald sem hann ekki hefur, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári eða, ef miklar sakir eru, allt að tveimur árum.

DEILA