Vinnustaðaeftirlit verkalýðsfélaganna

ASÍ og SA hafa um árabil staðið fyrir verkefninu EINN RÉTTUR – EKKERT SVINDL!

Verkefni þetta er gert út af stéttarfélögum innan ASÍ um allt land og tilgangur með verkefninu er að tryggja jafna stöðu launafólks og atvinnurekenda um allt land.

Atvinnurekendur vilja að allir rekstraraðilar sitji við sama borð til að tryggja eðlilegan samkeppnisgrundvöll, og stéttarfélögin vilja tryggja að félagsmenn fái greitt samkvæmt kjarasamningum.

Nú er fjórða sumarið að verða liðið hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga í virku eftirliti og er mikið gleðiefni að við merkjum að atvinnurekendur standi betur að málum eftir því sem við heimsækjum þá oftar segir á heimasíðu félagsins.

Þrátt fyrir það leynast mörg verkefni fyrir í þessum heimsóknum, og það sem hefur vakið sérstaka athygli er að stöku atvinnurekendur telja persónuverndarlög leysi þá undan þeirri lagaskyldu að framvísa launagögnum starfsfólks sem eftirlitsfulltrúar óska eftir en svo er ekki.

Eftirlitsfulltrúar Verk Vest þakka atvinnurekendum og því fjölmarga starfsfólki sem rætt var við góðar móttökur á líðandi sumri.

DEILA