Súðavík: Deiliskipulagi fyrir Vébjarnarstaði í Folafæti í til umsagnar

Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti þann 14. ágúst 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Vébjarnarstaði í Folafæti í Súðavíkurhreppi skv. 1. mgr. 41. gr.skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

Tillagan felur í sér að útbúa tvær lóðir, lóð A er 5,8 ha að stærð og lóð B er 0,85 ha og tvö framkvæmdasvæði C og D. Á lóð A er heimilt að reisa allt að 200 m² þjónustuhús með svefnaðstöðu auk geymslna og tækjabúnaðar. Innan byggingarreits er heimilt að reisa lítiðbaðhús með kaldri laug.

Heimilt er að setja upp litla vindmyllu á þak hússins eða á hentugum stað innan efra skipulagssvæðisins. Á lóð B er heimilt að reisa allt að 40 m² geymsluskúr. Á neðra skipulagssvæðinu er afmarkaðir tveir framkvæmdareitir, vegna óvissu um hentuga staðsetningu bryggju m.t.t. lendingar og hugsanlegra fornminja.

Innan reits C er heimilt að reisa litla bryggju með lausri uppdraganlegri framlengingu. Finnist ekki hentugur staður fyrir bryggju innan reits C færast allar heimildir af honum yfir á reit D.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 3, Súðavík og hjá
skipulags- og byggingarfulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 26. ágúst til 7. október 2020 á
venjulegum skrifstofutíma og á heimasíðu Súðavíkurhrepps www.sudavik.is.

DEILA