Föstudagur 18. apríl 2025

Hólskirkja í Bolungarvík

Auglýsing

Hólskirkja er í Bolungarvíkurprestakalli í Vestfjarðaprófastsdæmi. Hóll er bær og kirkjustaður í Bolungarvík. Þar voru kaþólsku kirkjurnar helgaðar Maríu guðsmóður.

Kirkjan, sem nú stendur þar, var byggð 1908 og vígð 6. desember sama ár.

Rögnvaldur Ólafsson teiknaði hana en Guðni M. Bjarnason á Ísafirði var yfirsmiður. Kirkjan er út timbri og járnvarin. Timbrið kom að mestu tilhöggvið frá Noregi.

Kirkjan var í eigu Hólsbænda til 1925, þegar söfnuðurinn keypti hana á 4.400.- kr. Gréta og Jón Björnsson skreyttu hana og máluðu að innan 1978. Skírnarsárinn er verk Ríkharðs Jónssonar, myndhöggvara. Prédikunarstóllinn er beint upp af altarinu. Tvær stórar klukkur frá 1620 og 1775 eru í kirkjunni.

Í maí 2019 var nýtt og glæsilegt pípuorgel vígt í Hólskirkju. Orgelsmiður var Björgvin Tómasson en einnig komu mikið að verkinu Margrét Erlingsdóttir, rafvirki og Jóhann Hallur Jónasson, smiður.

Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing
Auglýsing

Fleiri fréttir