COVID: Engin ný smit á Vestfjörðum síðan fyrir helgi

Fjórir eru smitaðir af COVID-19 á Vestfjörðum.
Þrír eru smitaðir eftir innanlandssmit, þar af greindust tveir í sóttkví.

Eitt smit sem tilkynnt var um í síðustu viku reyndist gamalt og ekki smitandi. Sá einstaklingur er laus úr einangrun og allir sem fóru í sóttkví í tengslum við það einnig. Þá kom einn smitaður frá útlöndum fyrir tveimur vikum og greindist í landamæraskimun. Samtals eru 14 í sóttkví.

Enn er talsvert af fólki að koma á degi hverjum í sýnatökur vegna einkenna sem gætu verið kórónaveiran. „Það er til mikillar fyrirmyndar. Með þessu lágmörkum við líkurnar á að hópsýkingar komi aftur upp,“ segir Gylfi Ólafsson forstjóri.

DEILA