BL sýnir sjö nýja bíla á Hólmavík og Ísafirði

Söluráðgjafar BL leggja land undir fót um helgina þegar haldin verður bílasýning á alls sjö, nýjum fólksbílum, jepplingum og jeppum á Hólmavík og Ísafirði.

Sýndir verða fjórhjóladrifnu jepplingarnir Hyundai Tucson, Nissan Qashqai, Renault Koleos, Subaru Outback og Subaru XV auk hins fullvaxna Land Rover Defender.

Einnig slæst með í för 100% rafdrifni og framhjóladrifni fólksbíllinn Hyundai Kona EV sem hefur tæplega 450 km drægi á rafhlöðunni.

Á Hólmavík fer bílasýningin fram föstudaginn 18. september, milli kl. 16 og 17 við Pakkhúsið, þar sem Kaupfélag Steingrímsfjarðar rekur byggingavöruverslun.

Á Ísafirði verður sýningin á laugardag við Bílaverkstæði SB ehf. við Sindragötu 3 milli kl. 12 og 16.

Í tilefni sýningarinnar á Ísafirði býður Bílaverkstæði SB viðskiptavinum sínum við Djúp ýmis afsláttarkjör af vörum og þjónustu sem hægt er að kynna sér nánar á sýningunni á laugardag.

DEILA