Baldur – Ferjan siglir yfir fjörðinn allt árið um kring

DCIM100MEDIADJI_0030.JPG

Ferjan Baldur er oft kölluð brúin yfir til Vestfjarða.
Ferjan siglir yfir fjörðinn allt árið um kring.

Á sumrin siglir ferjan Baldur daglega ein ferðir yfir Breiðafjörðinn frá Stykkishólmi til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey.
Það er því hægt að fara í dagsferð frá Stykkishólmi í eyju í 2,5 tíma eða jafnvel nýta sér eitthvað af gistimöguleikunum og njóta eyjunnar í lengri tíma.
Fyrir þá sem ferðast með bíl, er mögulegt að senda bílinn á undan sér yfir fjörðinn á meðan stoppað er í Flatey.
Þetta er mjög hentugur kostur fyrir þá sem eru t.d. að ferðast til Vestfjarða en vilja upplifa stemninguna og allt það sem Flatey hefur upp á að bjóða. (Hundar eru leyfilegir og er sér svæði fyrir eigendur og hunda)

Skipið er 1677 brúttótonn að stærð. Lengd þess er 68,3 metrar og breidd þess 11.6 metrar.
Ganghraði skipsins er mestur 14 sjómílur, sem þýðir að það tekur um 2kl og 30 mínútur að sigla á milli Stykkishóms og Brjánslækjar .

Í skipið komast 280 farþegar í hverja ferð auk 49 bíla.
Skipið er mjög vel búið af siglingatækjum og björgunarbúnaði.

DEILA