Þyrla sótti veikan sjómann í Norðurfjörð á Ströndum

Á öðrum tímanum í dag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð frá skipverja sem staddur var úti fyrir Ströndum og var með verk fyrir hjarta.

Hann var einn um borð í fiskibát á strandveiðum og sigldi í átt að Norðurfirði.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út sem og Björgunarsveitarfólk fór ásamt öðrum heimamönnum  á móti bátnum og fylgdu í land.

Áhöfnin á TF-GRO tók á móti manninum í Norðurfirði og kom honum undir læknishendur í Reykjavík.

DEILA