Matþörungar – Ofurfæða úr fjörunni

Sögur útgáfa hefur gefið út bókina Íslenskir matþörungar.

Höfundar eru Eydís Mary Jónsdottir, Hinrik Carl Ellertsson, Karl Petersson og Silja Dögg Gunnarsdóttir

Bókin er fyrir alla þá sem elska mat og matreiðslu, heilbrigði og útiveru, nýtingu og sjálfbærni í íslenskri náttúru segir í kynningu á bókinni.

Einstaklega hagnýt og fræðandi bók sem opnar okkur heim íslenskra matþörunga. – Hér getur þú lesið allt um þessa ofurfæðu fjörunnar; hvernig má tína hana, verka og matreiða.

Í fyrsta skipti birtist í íslenskri bók alhliða fróðleikur um þá ofurfæðu sem matþörungar eru.
Hér getur þú lært allt um hlaðborð fjörunnar, sjálfbæra nýtingu matþörunga, verkun, geymsluaðferðir og matreiðslu.
Aðgengileg kort sýna útbreiðslu þörunganna.

DEILA