Litla Skiptibókasafnið í Súðavík

Eins og Súðvíkingar og fleiri vita þá er Litla Skiptibókasafnið í síðasta Símaklefa landsins og merkilegt er að síminn er enn tengdur og tekur tíkalla.

Litla Skiptibókasafnið setti Dagbjört Hjaltadóttir á laggirnar 2016 af miklum myndarbrag og margur bókaormurinn hefur lagt leið sína þangað í leit að góðri bók og skila kannski einni enn betri í staðinn.

Símaklefinn er staðsettur niður í gamla þorpi og er því mikið notaður af sumargestum.

Hann lengi lifi og megi hann gleðja gesti og gangandi.

DEILA