Tóti ÍS 10

Tóti ÍS 10

Einn af þeim bátum er í umsjá Byggðasafns Vestfjarða er Tóti ÍS 10.
Hann var smíðaður í Bolungarvík árið 1930.

Það var Falur Jakobsson skipasmiður frá Barðsvík á Hornströndum sem smíðaði hann fyrir Einar Guðfinnson og var Tóti jafnframt fyrsti báturinn sem Einar Guðfinnsson lét smíða fyrir sig.

Tóti er smíðaður úr eik og furu og er mældur 7 brúttólestir.
Hann var gerður út frá Bolungarvík til ársins 1947.

Tóti var í notkun við Djúp allt til ársins 1968 er hann var dæmdur ónýtur.
Steingrímur Pétursson bóndi frá Hjöllum í Skötufirði afhenti Byggðasafni Vestfjarða bátinn árið 1987.

DEILA