Örugg uppbygging 5G-kerfisins

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur skipað starfshóp um örugga uppbyggingu 5G-kerfisins.

Starfshópurinn er settur á fót í þeim tilgangi að fylgja eftir stefnumótun og aðgerðum, annars vegar til að tryggja nauðsynlegan fjölbreytileika sendabúnaðar farneta og hins vegar til útfærslu á skilgreiningu á hvaða afmörkuðu þættir kerfa geti helst flokkast sem viðkvæmir vegna erlendrar eða innlendrar öryggissamvinnu.

Skipan hópsins tengist frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra lagði fram á Alþingi í vor en í því var sérstakt ákvæði um öryggi 5G fjarskiptakerfa.

Ekki reyndist unnt að ljúka afgreiðslu frumvarpsins á vorþingi og verður það lagt fram að nýju í haust. Ákvæðið, sem er 87. gr. frumvarpsins, varðar þær ráðstafanir sem stjórnvöld geta gripið til við þróun og uppbyggingu farneta í íslenskri lögsögu vegna áhættuþátta er varða brýna almannahagsmuni og öryggi.

Starfshópurinn er skipaður Ingu Þóreyju Óskarsdóttur frá dómsmálaráðuneyti, Páli Þórhallssyni frá forsætisráðuneyti, Veturliða Þór Stefánssyni frá utanríkisráðuneyti og Sigurði Emil Pálssyni, formanni hópsins, frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Skipunartími hópsins er til 31. desember 2021.

DEILA