Mygla í köku

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á Drömmekage frá Danmörku sem fyrirtækið Ásbjörn Ólafsson ehf. flytur inn.

Innköllunin er vegna möguleika á myglu í kökum áður en síðasti söludagur rennur upp.

Fyrirtækið hefur innkallað kökurnar, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi fjórar framleiðslulotur:

Vörumerki: Dan cake
Vöruheiti: Drömmekage med lækker kokostopping
Nettómagn: 350 g
Best fyrir dagsetningar: 28/8, 2/9, 22/9, 28/9 (2020)
Strikamerki: 5709152018462
Framleiðandi: Dan Cake A/S, Hjortsvangen 15, 7323 Give, Danmörk
Innflytjandi: Asbjörn Ólafsson ehf, Köllunarklettsvegi 6, 104 Reykjavík
Dreifing: Verslanir um allt land
Innköllun á köku vegna hættu á myglu

Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga.
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Ásbjörn Ólafsson ehf. í síma 820 1146.

DEILA