Auglýstir styrkir í verkefnið Sterkar Strandir

Meginmarkmið verkefnisins Sterkar Strandir eru eftirfarandi:

• Sterkir innviðir og öflug þjónusta
• Stígandi í atvinnulífi
• Stolt og sjálfbært samfélag

Væntanlegar umsóknir þurfa að taka mið af þessum markmiðum.

Á vef Byggðastofnunar eru nánari reglur um styrkveitingar, markmiðaskjal verkefnisins.

Athuga ber að ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda.

Það styrkir umsókn ef verkefnið laðar fram fjármuni og krafta aðstandenda verkefnisins og samstarfsaðila.

Samstarf aðila sem að jafnaði starfa ekki saman styrkir umsóknina.
Umsækjendur er hvattir til að lesa leiðbeiningar og leita sér aðstoðar hjá verkefnisstjóra.
Vönduð umsókn sem styður við framtíðarsýn og meginmarkmið verkefnisins er líklegri til árangurs.

Um er að ræða fyrstu úthlutun í verkefninu en verkefnið er hluti af byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Umsóknarfrestur er til kl 12 á hádegi 24. júlí 2020. Hægt er að sækja um styrki á vef Vestfjarðastofu.

DEILA