Strandveiðar: Afli í maí

Strandveiðibátum fjölgaði um 13% frá maí í fyrra en afli jókst aðeins um 4%. Fjöldi landana stóð næstum í stað sem segir allt um hversu tíðarfarið var erfitt.

Aflabrögð voru misjöfn eins og gengur og gerist. Á flestum svæðum var góð veiði framan af maí en þegar nær dró mánaðamótum varð erfiðara að ná skammtinum. Heildarafli á hvern bát dróst saman á öllum veiðisvæðum. Minnst á svæði B, en mest á svæði D. Mestur var meðalafli á bát á svæði A – 5,6 tonn.

Alls tókst 31 að róa alla 12 dagana sem í boði voru, 22 á svæði A, 5 á svæði C og 4 á svæði D.
Samanburður við maí í fyrra sýnir að sveiflan er mikil þar sem 90 bátar voru þá með 12 daga.

Það sama var upp á teningunum varðandi fjölda sem fiskuðu meira en 10 tonn, 6 bátar náðu því marki nú á móti 22 í maí í fyrra.

DEILA