Samgönguráðherra kynnti á dögunum áform og viðræður um nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli á ríkisstjórnarfundi.
Þau gera ráð fyrir endurbyggðri 1.600 m² flugstöðvarbyggingu á núverandi stað. Ríkið hóf nýverið samningaviðræður við Air Iceland Connect um að koma að uppbyggingu flugstöðvarinnar með þátttöku fjármála- og efnahagsráðuneytis, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og Isavia.
Í viðræðunum verður unnið að því að meta heildarhagkvæmni verkefnisins út frá ólíkum þáttum. Ein af meginforsendum ríkisins í viðræðunum er að uppbyggingin verði fjárhagslega sjálfbær og geti staðið undir sér til lengri tíma.
Nýleg ástandsskoðun á flugstöðinni á Reykjavíkurvelli leiddi í ljós að núverandi byggingar eru mun verra ástandi en talið var í fyrstu.
Því verða kannaðar leiðir að reisa endubyggja flugstöð í stað að nýta eldri byggingar.
Gert er ráð fyrir að grunnform nýrrar byggingar verði einfalt til að lágmarka byggingarkostnað.
Ennfremur að hæð byggingarinnar og þak taki mið af núverandi flugstöð og núgildandi flugöryggislínu.
Niðurgreiðsla fargjalda hefst í haust
Sigurður Ingi segir uppbyggingu á nýrri flugstöð á Reykjavíkurflugvelli mikilvægan lið í að efla innanlandsflug. Annar þáttur er að auðvelda íbúum á landsbyggðinni að sækja miðlæga þjónustu á höfuðborgarsvæðinu í innanlandsflugi.
Stefnt er að því að hefja greiðsluþátttöku stjórnvalda í flugi í september nk. en þessi leið hefur verið nefnd skoska leiðin. Síðustu mánuði ársins munu íbúar landsbyggðarinnar sem búa í meira en 275 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni fá endurgreiddan hluta fargjalds af ferð til og frá Reykjavík eða af tveimur leggjum.