Öll vötn til Dýrafjarðar – Styrkúthlutanir

Dýrafjörður

Auglýst var eftir styrkumsóknum 29. apríl 2020 úr Frumkvæðissjóð sem verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar fyrir verkefnastyrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð.

Umsóknarfrestur rann út 14. maí 2020. Til úthlutunar voru 9,37 milljónir.

Alls bárust 16 umsóknir. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 58 milljónir. Sótt var um rúmlega 22,5 milljónir. Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar og skilyrðum Frumkvæðissjóðs. Úthlutað var styrkjum til 12 verkefna tengdum menningu og listum, atvinnuuppbyggingu og nýsköpun.

Allt eru þetta verkefni sem verkefnisstjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á Þingeyri og við Dýrafjörð.

Yfirlit yfir styrkhafa sem hlutu styrk úr Frumkvæðissjóð ÖVD

Berserk Films- Sumarljós og svo kemur nóttin 1.200.000
Blábankinn – Startup Westfjords’20 Nýsköpunarhraðall 400.000
Janne Kristensen – Group Residencies 800.000
Janne Kristensen – Website for enneagram 200.000
Jóhanna Gunnarsdóttir – Bakkarétt í Brekkudal í Dýrafirði – forransókn 170.000
Matthildur Helgadóttir f. h. eigenda Alviðru 3 – Fuglaskoðun í Alviðru – viðskipaáætlun 400.000
Óttar Freyr Gíslason – Fjallamennska í Vestfirsku ölpunum 500.000
Simbahöllin ehf. – Riding Courses for kids and beginners 1.250.000
Simbahöllin ehf.- Reinventing Simbahöllin 150.000
Tankur menningarfélag – Tankur – stálsmíðavinna 3.200.000
Víkingar á Vestfjörðum – Víkingasvæðið 2020 500.000
Þórir Örn Guðmundsson – Fegrun miðbæjar Þingeyrar 600.000

DEILA