Ferðagjöfin afhent Íslendingum

Einstaklingar með lögheimili á Íslandi, íslenska kennitölu og eru fæddir árið 2002 eða fyrr fá rafræna Ferðagjöf að upphæð 5000 kr. Þeir sem ekki nýta Ferðagjöfina geta gefið hana áfram, en hver einstaklingur getur notað að hámarki 15 gjafir. Hægt er að nota Ferðagjöfina til næstu áramóta.

Á vef Ferðamálastofu ferdalag.is má sjá þau fyrirtæki sem hyggjast taka á móti Ferðagjöfinni, þar með talin hótel, gistiheimili, afþreyingarfyrirtæki, bílaleigur og veitingastaði auk þess sem þar er hægt að sjá ýmis tilboð í tengslum við verkefnið.

Enn er hægt að skrá fyrirtæki til leiks.

Allar nánari upplýsingar má finna á ferdagjof.island.is

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra:

„Það er mjög ánægjulegt að þessari ívilnun í þágu ferðalaga innanlands hafi nú verið hleypt af stokkunum. Einn og hálfur milljarður er töluverð fjárhæð og þó að hlutur hvers og eins skipti kannski ekki sköpum fyrir einstaklinginn felst í honum er þetta ótvíræð hvatning um að nýta þá fjölbreyttu og góðu þjónustu sem íslensk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða. Ég þakka öllum sem unnu hörðum höndum að tæknilegri útfærslu á verkefninu og ég vona að þetta íslenska ferðasumar verði okkur sem flestum bæði ánægjulegt og eftirminnilegt.“

Hægt er að nálgast Ferðagjöfina með rafrænum skilríkum eða íslykli á ferdagjof.island.is

DEILA