Nýr fiskistofustjóri

Ögmundur Knútsson

Kristján Þór Júlíusson , sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað dr. Ögmund Knútsson, ráðgjafa, Fiskistofustjóra til fimm ára. Ögmundur hefur störf 1.maí nk.

Ögmundur er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri, meistaragráðu í sömu grein frá Háskólanum í Edinborg ásamt því að hafa lokið doktorsprófi frá sama skóla og fjallaði doktorsverkefnið hans um stjórnun á samstarfi í íslenskum sjávarútvegi með áherslu á þróun sölusamtakanna.

Ögmundur starfaði hjá Háskólanum á Akureyri frá árinu 1994 til ársins 2019 m.a. sem framkvæmdastjóri stefnumótunar og starfsþróunar á árunum 2001 til 2006, framkvæmdastjóri Rannsóknastofnunar háskólans 2006 til 2007 og deildarforseti á árunum 2015-2017.
Þá sinnti hann kennslu og rannsóknum við skólann og hafa rannsóknir hans tengst sjávarútvegi hér á landi og erlendis.

Á undanförnum mánuðum hefur Ögmundur starfað sjálfstætt sem ráðgjafi og hefur unnið að verkefnum tengdum sjávarútvegi meðal annars í Albaníu og Víetnam.

Nítján sóttu um emb­ættið og mat hæfn­is­nefnd fjóra umsækj­endur vel hæfa. Í umsögn hæfnisnefndar segir meðal annars: Ögmundur hefur öðlast víðtæka háskólamenntun sem nýtist í starfi og menntun og starfsreynslu sem tengist sjávarútvegi og stjórnsýslu á vettvangi háskóla og verkefna sem tengjast þeim störfum.

Að mati hæfnisnefndar uppfyllir Ögmundur allar menntunar- og hæfniskröfur vel og telst því vel hæfur til þess að gegna embætti Fiskistofustjóra.

DEILA