Hver verður Landsstólpinn 2020 ?

Blábankinn á Þingeyri.

Landstólpinn Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum.
Viðurkenningin er hvatning, því hugmyndin að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.

Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða hóp/verkefni á vegum fyrirtækis eða einstaklinga, fyrir framtak sem vakið hefur athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Hér með er lýst eftir tillögum um handhafa Landstólpans 2020. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.

Hafa má í huga hvort viðkomandi hafi:
– gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
– aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
– aukið samstöðu og jákvæðni íbúa
– dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.

Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni.

Tillögur sendist á netfangið: landstolpinn@byggdastofnun.is

Fyrri handhafar Landstólpans eru:

2019
Blábankinn á Þingeyri
2018
Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði
2017
Hörður Davíðsson athafnarmaður í Efri-Vík í Skaftárhreppi
2016
Sönghópurinn Álftagerðisbræður ásamt stjórnanda sínum Stefáni R. Gíslasyni
2015
Vilborg Arnarsdóttir frá Súðavík
2014
Norðursigling og Hörður og Árni Sigurbjarnarsynir á Húsavík
2013
Þórður Tómasson safnvörður á Skógum
2012
Örlygur Kristfinnsson frumkvöðull á Siglufirði
2011
Jón Jónsson þjóðfræðingur og menningarfulltrúi á Ströndum

DEILA