Svæðisbundin flutningsjöfnun

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki á grundvelli laga nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun. Lokadagur til að skila inn umsóknum vegna flutnings ársins 2019 er 31. mars 2020 en ekki er tekið við umsóknum að þeim tíma liðnum.

Sótt er um styrkina í gegnum umsóknargátt Byggðastofnunar.

Markmið laga nr. 160/2011, um svæðisbundna flutningsjöfnun, er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa þ.a.l. við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.

DEILA