Lífshlaupið: Ný keppni hefst 5. febrúar 2020

Skráning er hafin í Lífshlaupið 2020 – landskeppni í hreyfingu, og verður hún ræst í þrettánda sinn miðvikudaginn 5. febrúar næstkomandi.

Vinnustaðakeppnin stendur frá 5. – 25. febrúar en grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 5. – 18. febrúar.

Það er því um að gera að skrá sig og huga að því hvað vinnustaðurinn eða skólinn getur gert til þess að virkja sem flesta til þátttöku. Að sjálfsögðu er hægt að notast áfram við sitt notendanafn frá fyrri keppnum og um að gera að hafa samband ef einhver vandræði koma upp varðandi það.

Við vekjum athygli á því að ekki þarf að skrá inn vinnustaði frá síðustu keppni en það má finna alla á flettilistanum í skrefinu „Ganga í lið“ eða „Stofna lið“.
Endilega athugið hvort ykkur vinnustaður sé ekki örugglega skráður áður en þið stofnið nýjan. Hins vegar þarf að stofna inn ný keppnislið undir vinnustaðnum.

Sama á við um grunn- og framhaldsskólana. Allir skólar landsins ættu að vera í flettilistanum en þó þarf að stofna inn bekkina aftur. Það má gera á auðveldan hátt með excel innlestri.

Markmið Lífshlaupsins 2020 er fá 17.000 manns til að hreyfa sig

Við minnum á að einstaklingskeppnin er í gangi allt árið.
Allir sem eiga aðgang og hafa verið að taka þátt í vinnustaðakeppninni geta því
haldið áfram að skrá á sig hreyfinguna sína allt árið um kring.

DEILA