Ísafjörður: Engin tilboð bárust í fjölnota knattspyrnuhús

Ein hugmynd að fjölnota knattspyrnuhúsi.

Engin tilboð bárust í útboði vegna hönnunar og byggingar fjölnota knattspyrnuhúss á Torfnesi á Ísafirði. Opnað var fyrir tilboð í verkið föstudaginn 10. janúar.

Boðið var út á Evrópska efnahagssvæðinu í samstarfi við Ríkiskaup og alls sóttu 44 fyrirtæki útboðsgögnin.

Að sögn Guðmundar Gunnarssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, hafa margar ábendingar borist varðandi þær kröfur sem settar voru fram í útboðinu. „Verið er að vinna úr þessum athugasemdum og í framhaldinu verður tekin ákvörðun um næstu skref,“ segir Guðmundur.

DEILA