ALDAMÓTATÓNLEIKAR Á ÍSAFIRÐI.

ARG viðburðir kynna með stolti: ALDAMÓTATÓNLEIKAR Á ÍSAFIRÐI.

Fannst þér gaman að fara á ball eða horfa á popptíví?
Sástu Í svörtu fötum í Njálsbúð, Skímó á Broadway, Írafár á Gauknum, Land og syni í Sjallanum eða Á móti sól í Sjallanum?
Langar þig að sjá og heyra lög með þessum böndum flutt live?

Ef svarið er já við einhverjum af þessum spurningum ertu stálheppin/n því 27. mars ætlar landslið íslenskra popparra að troða upp á Ísafirði.

Þau sem fram koma eru:

Jónsi – Í svörtum fötum
Birgitta Haukdal – Írafár
Hreimur – Land & Synir
Gunni Óla – Skítamórall
Magni okkar – Á móti sól

Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið í hljómsveitum sem voru gríðarlega vinsælar og virkar í kringum síðustu aldarmót. Og gott betur en það, því flest af þessum böndum og söngvurum eru ennþá í fullu fjöri og starfandi sem tónlistarfólk.

Tónleikarnir verða tvískiptir, fyrir hlé munu ballöðurnar og rólegu lögin verða flutt en eftir hlé verður allt gert vitlaust og talið í hverja sprengjuna á fætur annarri.

Hljómsveitarstjóri verður hinn eini sanni Viggi úr Írafár og mun hann ásamt nokkrum af færustu hljóðfæraleikurum landsins sjá til þess að allur flutningur verði upp á tíu.
Miðaverð er 6.990 kr en sérstakt forsölutilboð verður til og með 2. mars, aðeins 5.500 kr.
Miðasalan hefst 17. febrúar og verður í Smiðjunni, Sindragötu 12c á Ísafirði.
Aðeins 400 miðar í boði.

DEILA