Þorp verður til á Flateyri 3. bók

Með þessari 3. bók af Þorp verður til á Flateyri hefur Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir lokið frásögn sinni af mönnum og málefnum á heimaslóðum í árdaga byggðar þar á mölinni.

Flateyri varð til sem þorp á síðari hluta 19. aldar. Eins og í öðrum þorpum við sjávarsíðuna allt í kringum landið, voru fiskveiðar og vinnsla aflans, ásamt þjónustu við nærliggjandi sveitir, grundvöllur byggðarinnar.

Undirstaða verksins er fréttaefni úr sendibréfum sem rituð voru um aldamótin 1900. Þau eru hluti tveggja bréfasafna sem hafa legið í ferðakofforti og kommóðuskúffu á Flateyri allar götur síðan.

Í bókunum þremur er fjallað um mannlíf, menningu og ýmsa aðra sögulega þætti á Flateyri og nágrenni á liðnum tímum. Margar teikningar eftir Freydísi Kristjánsdóttur prýða verkið og Ómar Smári Kristinsson kemur líka þar við sögu. Einnig ljósmyndir frá ýmsum tímum.

DEILA