Gamanmál að vestan. Auðkúluhreppur

Út er komin hjá Vestfirska forlaginu bókin Gamanmál að vestan – Auðkúluhreppur og í kynningu á bókinni segir:
Nú vendum við okkar kvæði í kross og komum með gamanmál eftir hreppum hér vestra. Byrjum auðvitað í Auðkúluhreppi, en hann er víst að verða einn aðal hreppurinn hér vestra segja gárungarnir. Þetta eru gamansögur, langar og stuttar, sem flestar hafa birst einhvern tíma áður í bókum forlagsins eða fjölmiðlum. Sumar þeirra mjög snjallar. Aðrar svona la-la eins og unga fólkið segir. En þar verður hver að dæma fyrir sig.
Hreppsnefnd Auðkúluhrepps og Búnaðarfélag Auðkúluhrepps koma hér mikið við sögu.
Mörgum finnst að vera þurfi einhver léttleiki í tilverunni með allri alvörunni. Það er nefnilega alltaf nóg af henni. Löngu er viðurkennt að gamansemi er lífsnauðsynleg öðru hvoru. En oft er skammt milli hláturs og gráturs!
Svo er bara að vona að aðrir hreppar í Ísafjarðarsýslu fylgi á eftir og út komi sem mest af gamansögum.

DEILA