Vindmælingamastur sett upp á Garpsdalsfjalli

Undanfarið hafa menn á vegum EM orku unnið við að setja upp mastur á Garpsdalsfjalli, til veður- og vindmælinga. Mastrið er um 80 m. hátt, búið vindmælum og ýmsum búnaði og tekur við af SODAR tæki sem sett var upp þarna fyrir ári síðan.

SODAR tækið mælir vind og loftraka með því að senda bylgjur upp í loftið og lesa endurvarpið af þeim. Veðurmælingar halda áfram næsta ár, þá munu liggja fyrir niðurstöður 2 ára mælinga.

Veðrið tafði reyndar nokkuð uppsetningu mastursins, bæði spilltist færð upp á fjallið og einu sinni þurftu þeir frá að hverfa vegna hvassviðris, sem er kannski fyrirgefanlegt á stað þar sem meiningin er að reisa vindmyllur.

DEILA