Samantekt af vikum 43-44 við vinnu Dýrafjarðarganga

Klárað var að leggja drenlögn með fram vinstri vegg í göngunum. Sem fyrr var unnið við uppsetningu á einangrunarklæðingu til vatnsvarna í göngunum ásamt því að haldið var áfram að sprautusteypa yfir klæðingarnar.

Búið er að steypa 11 hluta af 14 í yfirbyggingu vegskálans í Arnarfirði og eru þá bara eftir tvær steypufærur í fullri lengd og svo ein stutt í endann.
Haldið var áfram með fyllingar yfir vegskálann í Dýrafirði. Að auki var klárað að steypa undirstöðu fyrir mastur og sökkul fyrir fjarskiptahús sem standa utan við munna ganganna í Dýrafirði.

Í Dýrafirði var áfram unnið við fyllingar í veg, niðurlögn á vegræsum og frágangi á fláafleygum og skeringum. Einnig var byrjað aftur að keyra neðra burðarlag í veginn.

Á meðfylgjandi myndum má sjá útlögn á neðra burðarlagi, uppsetningu á járnamottum yfir einangrunarmottur, niðurlögn á steypu í sökkul fjarskiptahúss, horft yfir veg í Dýrafirði, fyllingavinnu yfir skálann í Dýrafirði, vegskálann í Arnarfirði en þar er búið að setja mótin yfir steypufæru 12 og niðurlögn á vegræsi í Dýrafirði.

DEILA