Ríkisstjórnin styrkir þriðja geirann

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra og ferðamála- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, að veita fjórar milljónir króna til samstarfs um að efla starf þriðja geirans og félagasamtaka hér á landi.
Gert er ráð fyrir að framlag ríkisins felist í aðstoð og fjárstuðningi við söfnun upplýsinga vegna rannsóknar á umfangi þriðja geirans og frumkvöðlastarfs innan hans, þátttöku í málþingum og öðrum sameiginlegum viðburðum og fjárframlagi til endurútgáfu handbókar um stjórnun og rekstur félagasamtaka.

Ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, Almannaheill, samtök þriðja geirans, og Fræða- og þróunarsetur þriðja geirans við Háskóla Íslands, munu á næstu dögum undirrita viljayfirlýsingu um að vinna sameiginlega að eflingu félagslegs frumkvöðlastarfs og nýsköpunar. Viljayfirlýsingin er liður í starfi ríkisstjórnarinnar til eflingar á starfi félagasamtaka í samræmi við gildandi stjórnarsáttmála. Hún er einnig í samræmi við nýsköpunarstefnu fyrir Ísland þar sem m.a. kemur fram þörf á hugvitsdrifinni nýsköpun á öllum sviðum samfélagsins.

Samvinna aðila mun beinast að eftirfarandi verkefnum:
Tilraunastofa fyrir nemendur af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands með það að markmiði að finna nýjar félagslegar lausnir í velferðarmálum í samvinnu við félagasamtök og notendur.

Vinnustofur um aðferðir við félagslega nýsköpun. Þær verða ætlaðar þeim sem eru að undirbúa stofnun nýrra félaga en einnig rótgrónum félögum sem ráðgera að leggja aukna áherslu á nýsköpunarverkefni.
Stofnun upplýsingavefs sem er ætlaður íslenskum félagasamtökum og nýtist við daglega stjórnun en einnig við undirbúning og framkvæmd umbótaverkefna. Endurnýjun handbókar um stjórnun og rekstur félagasamtaka.
Rannsókn á umfangi þriðja geirans á Íslandi og frumkvöðlastarfs sem þar fer fram.

DEILA