Notum endurskinsmerki

Lögreglan á Vestfjörðum vill hvetja alla fótgangandi í umferðinni til að vera vel sýnileg í svartasta skammdeginu. Þetta skiptir miklu máli hvað öryggi varðar, bæði í dreifbýli og í þéttbýli.

Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þetta á sérstaklega við þegar um dökkan klæðnað er að ræða en þó má í öllum tilfellum fullyrða að endurskinsmerki séu nauðsynleg.

Endurskinsmerkin þarf að staðsetja þannig að þau séu sýnileg og best er að hafa þau fremst á ermum, hangandi meðfram hliðum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina óvarða vegfarendur, hvort sem þeir eru gangandi, hlaupandi eða hjólandi, þeim mun meira er öryggi þeirra í umferðinni. Það er staðreynd að ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki a.m.k. fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerka skipt sköpum.

DEILA