Bókasafn Ísafjarðar 130 ára

Í dag miðvikudaginn 6. nóvember er Bókasafn Ísafjarðar 130 ára. Í tilefni dagsins býður starfsfólkið bæjarbúum og öðrum gestum að koma og fagna afmælinu. Þennan dag árið 1889 hófust útlán og var bókasafnið þá til húsa í barnaskólanum sem staðsettur var við Silfurgötu 3.
Í tilefni af þessum tímamótum verður myndasýning frá liðnum árum í salnum og tíðarandi frá síðari hluta 20. aldar mun setja svip sinn á húsið þennan dag.
Þegar haldið er upp á tímamót eins og þessi er gott að staldra aðeins við og líta um öxl – en ekki síður fram á veginn. Hvernig sérð þú bókasafnið fyrir þér í framtíðinni? Ertu með hugmyndir sem þig langar til að deila með okkur? Við hvetjum gesti til að taka þátt.
Bókasafnið verður opið kl. 12-18 eins og vanalega, boðið verður upp á kaffi og kleinur og vonumst við til að sjá sem flesta! Verið velkomin.

DEILA