Fundur um sértækar aflaheimildir

Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 er 5,3% aflaheimilda varið til margvíslegra sértækra aðgerða, svo sem byggðakvóta, sértæks byggðakvóta, línuívilnunar, skelbóta og strandveiða,

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að vega þurfi og meta fyrirkomulag þeirra aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir með það að markmiði að tryggja betur byggðafestu og nýliðun,

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða meðferð og ráðstöfun ofangreindra aflaheimilda. Hópinn skipa Þóroddur Bjarnason prófessor (formaður), Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir alþingismaður, Bergþóra Benediktsdóttir aðstoðarmaður forsætisráðherra, Gunnar Atli Gunnarsson aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þorsteinn Víglundsson alþingismaður.Starfsmenn starfshópsins eru Jón Þrándur Stefánsson og Hinrik Greipsson.

Starfshópurinn efnir til samráðsfundar með fulltrúum sveitarstjórnarstigsins og hagsmunaaðilum á Vestfjörðum.

Vestfjarðastofa hvetur fulltrúa sveitarstjórnarstigsins og hagsmunaaðila á svæðinu til að mæta á fundinn.

Fundurinn verður haldinn í sal Þróunarseturs Vestfjarða fimmtudaginn 19. september kl. 13-16.

Sveitarstjórnarfulltrúar, hagsmunaaðilar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á fundinn, sími: 450 3000 eða
fv@vestfirdir.is

Mikilvægt er að raddir sem flestra hagsmunaaðila á starfssvæðinu heyrist á þessum fundi.

DEILA