Tálknafjörður: Íþróttamiðstöðin opnar

Mikið hefur gengið á í hjarta Tálknafjarðar, íþróttamiðstöðinni, en nú er loksins komið að því að hægt verður að opna. Á morgun opnum við alla þjónustu nema heitu pottana sem þurfa meira klapp og ný tæki eftir drukknun í byrjun vikunnar. Verið er að strjúka raf- og tölvulögnum svo eftirlitskerfið virki og við höfum tröllatrú á því að það klárist í dag.

Kl. 11:00 í fyrramálið opnar Bjarnveig dyrnar með bros á vör og öllum frjálst að sprikla og baða sig eftir bestu getu til kl. 14:00, því nú er komin vetraropnun.

Í ljós hefur komið að lagnir höfðu gefið sig á nokkrum stöðum, stofnæð hitaveitu undir öðrum pottinum lak sem og lagnir í lagnakjallara, bráðabirgðaviðgerð hefur farið fram en fram undan er hönnun og fjárfesting í endurbótum lagna.

DEILA