Sögurölt: Kýrhamar á Skriðnesenni í Bitru

Þátttaka í söguröltum safnanna á Ströndum og í Dölum hefur verið til fyrirmyndar í sumar. Nú er komið að níunda og næstsíðasta sögurölti sumarsins og er það á dagskrá miðvikudaginn 21. ágúst kl. 19:30. Gengið verður frá hlaðinu á Skriðnesenni í Bitrufirði og út með sjónum að Kýrhamri. Vegalengdin frá bænum út að hamrinum er 2 km, eftir auðgengnum slóða. Sögur verða sagðar á leiðinni. Hækkun er engin og veðurspáin er góð. Verið öll hjartanlega velkomin.

DEILA