Skólasetning á Tálknafirði

Grunnskólinn á Tálknafirði. Mynd: Tálknafjörður.is

Leikskólastarf Tálknafjarðarskóla hófst mánudaginn 19. ágúst og skólasetning grunnskólahluta fór fram í húsnæði skólans þriðjudaginn 20. ágúst. Vel var mætt af bæði nemendum og foreldrum. Í ár eru 9 nemendur í leikskólanum og 38 nemendur í grunnskólanum eða samtals 47 nemendur. Allir nemendur og starfsfólk skólans fengu vinaarmband að gjöf frá skólastjóra sem tákn um nýja og spennandi tíma fram undan sem einkennast af vinsemd og samvinnu. Skólastjóri Tálknafjarðarskóla er Birna Friðbjört S. Hannesdóttir.
Nokkrar nýjungar eru í skólanum t.a.m. er boðið upp á jóga með Láru í byrjun skóladags þar sem allir nemendur koma saman og taka stuttar jógaæfingar til að undirbúa sig fyrir skóladaginn. Virkilega skemmtileg og hressandi nýjung. Lögð verður sérstök áhersla á samþættingu námsgreina og unnið með heildstæð verkefni þvert á námsgreinar. Slík áhersla tengist markmiðum aðalnámskrár grunnskóla um “að gera námið merkingarbærara fyrir nemendur, skýra fyrir þeim samhengi fræðigreina og nauðsyn þess að hafa innsýn í heim þeirra”. Einnig hefur verið tekið upp 60 mínútna kennslustundir í stað 40 mínútna.

DEILA