Íslenskunámskeið í Háskólasetrinu

Á hverju ári heldur Háskólasetur Vestfjarða mörg námskeið í íslensku og síðastliðinn fimmtudag lauk einu slíku og annað hófst í gær.
Nemendahópurinn var mjög blandaður, hann samanstóð af fólki alls staðar að úr heiminum, sumir á sínu fyrsta íslenskunámskeiði en aðrir lengra komnir.
Aðalkennari námskeiðsins var Jón Bjarni Atlason. Hann er íslenskufræðingur að mennt og hefur kennt á íslenskunámskeiðum Háskólaseturs áður. En kennsluaðferðir námskeiðsins voru fjölbreyttar og lögð var áhersla á að nýta vikurnar sem allra best. Fyrir utan morgunkennsluna, voru málfræðiæfingar, samtalsæfingar, kvikmyndasýningar, framburðaræfingar, prjónakvöld, pönnukökubakstur, ljóðlist og skyndihjálp efni sem nemendur fengust við á námskeiðinu. Einnig var ferð á slóðir Gísla sögu í Haukadal og nemendum boðið upp á einleik Elfars Loga Hannessonar um Gísla.
Nemendurnir náðu miklum framförum og var árangri þeirra fagnað síðastliðinn fimmtudag með fiskisúpu ásamt því að allir fengu viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku á námskeiðinu. Samtals komu í sumar til Ísafjarðar um sextíu nemendur til þess að læra þetta fallega tungumál.

DEILA