Aldrei aftur Hirósíma og Nagasakí – Kertafleyting á Ísafirði og Patreksfirði í kvöld

Kertafleyting á Patreksfirði 2018. Mynd: Guðrún Anna Finnbogadóttir

Þann 9. ágúst eru 74 ár síðan kjarnorkusprengjum var varpað á borgirnar Hírósíma og Nagasakí í Japan. Frá árinu 1985 hafa Íslendingar minnst fórnarlamba þessara skelfilegu árása með því að fleyta kertum og árétta kröfuna um heim án kjarnorkuvopna.

Yfirlýsingin er: Aldrei aftur Hirósíma og Nagasakí.

Kertafleyting verður í fjörunni í Neðsta á Ísafirði föstudaginn 9. ágúst kl. 22.30.

Á Patreksfirði verður fleytingin í Króknum við franska minnisvarðann kl. 23.

Kerti verða fáanleg á staðnum.

DEILA