Streymt verður frá samráðsfundinum í Háskólasetrinu í dag

Hægt verður að taka þátt í Háskólasetrinu í dag!

Samráðsfundur Vísinda- og tækniráðs 2017-2019 við vísindasamfélagið, atvinnulífið og aðra hagsmunaaðila verður haldinn í dag klukkan 15-17. Sent verður út frá fundinum í beinni útsendingu í húsnæði Háskólaseturs Vestfjarða. Eftir útsendinguna verða umræður.

Samkvæmt stefnu Vísinda-og tækniráðs 2017 – 2019 ákvað ráðið að efna til samráðs við íslenskt þjóðfélag, þ.m.t. almenning, vísindasamfélagið og atvinnulífið, um hvaða samfélagslegu áskoranir Ísland standi frammi fyrir á næstu 10–50 árum og eiga að njóta forgangs í rannsóknum- og nýsköpun. Samráðið við almenning var annars vegar framkvæmt með rannsókn Maskínu með vísindalegum viðurkenndum eigindalegum og megindlegum aðferðum og hins vegar í gegnum opið samráð á vefgátt sem auglýst var í tengslum við Vísindavöku Rannís 2018.

Nú er leitað samráðs við vísindasamfélagið, atvinnulífið og aðra hagsmunaaðila með opnum fundi. Þar verða niðurstöður samráðsins við almenning kynntar og í kjölfarið á því verða umræður um niðurstöðurnar í hópum, sem svo skila af sér tillögum og ábendingum til stýrihóps verkefnisins. Stýrihópurinn mun í kjölfarið skila tillögum um mögulega forgangsröðun rannsókna sem horft verður til við mótun markáætlunar og áherslna í alþjóðasamstarfi.

Fundurinn er öllum opinn og ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram og það er gert hér.

Athugið að fundinum verður streymt á netinu og er hann opinn öllum. Sérstakar vinnustofur verða settar upp hjá Háskólasetri Vestfjarða, Háskólanum á Akureyri og Austurbrú en allir aðilar sem vilja koma saman og fjalla um málið geta gert slíkt á sínum vettvangi og sent sínar niðurstöður á rannis@rannis.is merkt samfélagslegar áskoranir.

Í innsendum gögnum þarf að koma fram listi yfir þá sem sátu viðkomandi fund, lýsing á framkvæmd fundarins og helstu niðurstöður vinnuhópsins á hverjum stað. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag við vinnufundinn kemur svo fram í streyminu á mánudag.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA