Oddi hf. Patreksfirði, framúrskarandi fyrirtæki annað árið í röð

Fyrirtækið Oddi hf. á Patreksfirði var á dögunum valið framúrskarandi fyrirtæki skv. greiningu Creditinfo, annað árið í röð. Alls uppfylla 857 fyrirtæki eða einungis 2% allra skráðra fyrirtækja á Íslandi ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk og stöðugleika. Við mat á fyrirtækjum er horft til þriggja ára tímabils og þurfa skilyrðin að vera uppfyllt öll árin.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess.

Oddi hf. var stofnað árið 1967 og hefur verið burðarás í atvinnulífi á Patreksfirði og suðurhluta Vestfjarða í áraraðir. ​Hjá Odda starfa um 60 starfsmenn í landvinnslu og 26 sjómenn.

Oddi hf. byggir á veiðum sjávarafla úr endurnýtanlegum fiskstofnum og starfar í sátt við samfélag og umhverfi með gæði og ferskleika að leiðarljósi. Útgerðin rekur tvo línubáta, Núp BA-69 og Patrek BA-64 og er í samstarfi við smábátaútgerðir á svæðinu. Um 5.000 tonn af hráefni fara í gegnum vinnsluna á ári og eru umhverfisvæn sjónarmið höfð að leiðarljósi í allri framleiðslu og var Oddi hf. fyrsta fyrirtækið til þess að fá MSC vottun á Íslandi.

Framleiðslan skiptist niður í 38% ferskar afurðir, 35% frystar afurðir og eru um 27% framleiðslunnar saltaðar afurðir og er einn af styrkleikum fyrirtækisins einmitt sveigjanleikinn sem felst í þessu. Vinnsluferlið er í stöðugri endurskoðun og er stöðugt unnið að því að gera það markvissara og einfaldara. Þá er mikið er lagt upp úr góðu sambandi við viðskiptavini og afurðarkaupendur. Allir starfsmenn í vinnslu sækja fiskvinnslunámskeið og er áhersla lögð á endurmenntun starfsmanna og stjórnenda. Fulltrúar fyrirtækisins sækja alla helstu viðburði og fundi hvort sem um er að ræða sjávarútvegsráðstefnur eða markaðsfundi.Vert er að geta þess að konur eru í meirihluta þegar kemur að stjórn og stjórnun fyrirtækisins.

Oddi hf. hefur á síðustu árum verið stöðugt að efla vinnslu á ferskum flökum og flakahlutum sem fluttur er með flugi á erlenda markaði og kemur þ.a.l. inn á borð neytandans án þess að hafa verið frystur. Stærsti hluti ferskfisksframleiðslunnar er unninn úr þorski og ýsu eða um 95%. Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur bæði í hnökkum og flökum, þá er um að ræða bæði ýsu og þorsk. Einnig eru framleidd þorskflök og hnakkastykki fyrir Frakkland, Belgíu, Bretland og nýverið Sviss.

Oddi hf. leggur mikla áherslu á gæðaeftirlit í framleiðslu saltfiskafurða og er öll framleiðsla fyrirtækisins seld út á stöðugleika í gæðum framleiðslunnar. Gæði umfram magn er slagorð fyrirtækisins. Fyrirtækið vill vera leiðandi í framleiðslu á hágæða fiskfurðum – ferskum, frystum og söltuðum – og leggur það mikið uppúr að fylgjast með nýjustu straumum og stefnum innan greinarinnar. Rekstrarmarkmið útgerðar Odda hf. er að stunda ábyrgar veiðar úr fiskstofnum á Íslandsmiðum og stuðla að sem bestri sátt við lífríki sjávar og umhverfið almennt.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA